Ferill 147. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1996. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 147 . mál.
266. Frumvarp til laga
um breytingu á lögum nr. 95/1980, um Söfnunarsjóð lífeyrisréttinda, með síðari breytingum.
(Eftir 2. umr., 5. des.)
1. gr.
2. gr.
Ráðherra er heimilt að ákveða með reglugerð, að fengnum tillögum stjórnar sjóðsins, að lífeyrissjóðurinn taki við viðbótariðgjaldi sem greitt verði umfram iðgjald skv. 1. mgr.
3. gr.
Samanlögð iðgjöld sjóðfélaga hvert almanaksár skulu umreiknuð í stig er mynda grundvöll lífeyrisréttinda hans.
Til grundvallar stigaútreikningi skal grundvallarfjárhæð í janúar 1996 vera 49.084 kr. og breytist hún mánaðarlega í hlutfalli við breytingu á vísitölu neysluverðs til verðtryggingar frá 174,2 stigum. Verði grundvöllur þessi að dómi sjóðstjórnar ónothæfur mælikvarði skal hún ákveða annan stigagrundvöll, svo og tengingu hans við fyrri grundvöll. Sama gildir ef stigagrundvöllur, sem ákveðinn hefur verið af sjóðstjórn, reynist síðar ónothæfur.
Stig ársins reiknast þannig að deilt skal í tíföld iðgjöld, sem greidd hafa verið vegna hlutaðeigandi sjóðfélaga, með grundvallarlaunum ársins skv. 2. mgr. Við útreikning lífeyris reiknast áunnin stig að fullu. Ef um maka- eða örorkulífeyri er að ræða skal reikna að fullu stig þeirra 30 ára sem hagstæðust eru fyrir sjóðfélagann, en að hálfu stig þeirra ára sem afgangs verða. Þó skal aldrei miða við færri stig en áunnin eru.
Ekki skal reikna stig fyrir tíma eftir lok þess mánaðar er sjóðfélagi nær 70 ára aldri.
Stig skulu reiknuð með þremur aukastöfum.
Verði iðgjöld ekki reiknuð í stig, sbr. 4. mgr., fer um endurgreiðslu þeirra eftir ákvæðum 16. gr.
4. gr.
Lífeyrir, sem úrskurðaður hefur verið skv. 10., 11., 12. og 13. gr., skal taka sömu hlutfallsbreytingum í mánuði hverjum og vísitala neysluverðs til verðtryggingar sú sem Hagstofa Íslands birtir samkvæmt lögum nr. 12/1995, með síðari breytingum.
Verði gerð breyting á grundvelli eða á útreikningi neysluverðsvísitölunnar skal ráðherra, að fengnum tillögum stjórnar sjóðsins, ákveða með hvaða hætti lífeyrir samkvæmt fyrrnefndum greinum skuli verðtryggður þaðan í frá.
5. gr.
6. gr.
Stjórn sjóðsins er heimilt að kaupa víkjandi skuldabréf fyrir allt að 100 millj. kr.
7. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1997.